dettifoss.is

Hér setur þú lýsinguna á vefnum

Velkomin í Norðurþing.

Sveitarfélagið Norðurþing varð til árið 2006 við sameiningu fjögurra sveitarfélaga, Húsavíkurbæjar, Kelduneshrepps, Öxarfjarðarhrepps og Raufarhafnarhrepps. Nær það yfir rúmlega 17% landsins, frá Reykjahverfi í Suður Þingeyjarsýslu að Ormarsá austan við Raufarhöfn og upp fyrir Grímsstaði á Fjöllum, í Norður Þingeyjarsýslu. Þéttbýliskjarnarnir í sveitarfélaginu eru Húsavík, Kópasker og Raufarhöfn.

Menning, blómlegt mannlíf, listsköpun og saga einkennir Norðurþing, en sænski landkönnuðurinn Garðar Svavarsson, sem uppgötvaði fyrstur manna að Ísland væri eyja, hafði vetursetu á Húsavík fjórum árum áður en Ingólfur Arnarson nam landið.

Margar af helstu náttúruperlum Íslands eru innan Norðurþings. Fyrst ber að nefna Þjóðgarðinn í Jökulsárgljúfrum, með sína stórbrotnu náttúru. Selfoss, Dettifoss, Hafragilsfoss og Réttarfoss mynda einstæða fossakeðju sem á fáa sína líka í veröldinni, en þar eru einnig Hljóðaklettar og Ásbyrgi. Að auki má nefna Æðafossa í Laxá, Grettisbæli í Öxarnúpi auk Melrakkasléttu sem er ævintýri líkast að heimsækja, enda náttúra hennar margbrotin.

Fuglalíf er mjög fjölskrúðugt og fjöldi fuglaskoðunarstaða, t.d. í Kelduhverfi, Kotatjörn við Kópasker og á Rauðanúp á Melrakkasléttu, en þar er nyrsta súlubyggða á landinu auk þess sem hér er einn örfárra aðgengilegra varpstaða súlunnar

Hvalaskoðun og sjóstangveiði á Skjálfanda er spennandi afþreying en einnig er hægt að stunda silungsveiði á mörgum stöðum í Norðurþingi, t.d. Mýrarkvísl, Botnsvatni fyrir ofan Húsavík, Litlaá í Kelduhverfi, Presthólalón og í ýmsum vötnum á Melrekkasléttu. Ekki má gleyma selnum, en hann er t.d. hægt að sjá við Jökulsá, Kópaskeri og Melrakkasléttu.

Söfn í Norðurþingi er mjög fjölbreytt, en þar eru m.a. byggðasöfn, hvalasafn, reðursafn og jarðskjálftasýning.

Fjórar upplýsingamiðstöðvar eru í Norðurþingi, á Húsavík, í Gljúfrastofu, á Kópaskeri og á Raufarhöfn, en að auki er hægt að nálgast upplýsingar hjá flestum ferðaþjónustuaðilum.

 

 

 

 

 

Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn